Guðrún er doula og hóf nám sitt í júní 2019. Guðrún er gift tveggja barna móðir og býr í Hafnarfirði. Í dag starfar Guðrún hjá Hönd í hönd ráðgjöf ehf við doulustörf, hjá Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði og stundar einnig nám í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Áhugi Guðrúnar á doulustarfinu kviknaði þegar hún gekk með sitt fyrsta barn sem fæddist árið 2015. „Ég hef frá því ég gekk með drenginn minn 2014-2015 haft gífurlegan áhuga á öllu sem við kemur meðgöngu og fæðingum, en þegar ég gekk með mitt annað barn 2017-2018
varð áhuginn enn meiri og ég las mér mikið til um fæðingar og undirbúing þeirra og hvernig styrkur fæðandi konu getur farið með henni útí lífið“.
Virðingarík samskipti eru Guðrúnu sérstaklega hugleikin, með fæðingu sonar hennar 2015 fór Guðrún að endurskoða samskipti sín og fólks almennt við börn aðallega. „Virðingaríkt tengslauppeldi hefur breytt lífi mínu, það er ekkert öðruvísi. Ósjálfrátt þá fór ég í mikla sjálfsvinnu þegar ég skoði alla þessa þætti sem að komu að börnunum mínum og ég vildi gera öðruvísi. Það hefur leitt mig á svo góðan stað. Á meðgöngu dóttur minnar (fædd 2018) var ég svo spennt að grúska, lesa og hlusta um umönnun barna frá fæðingu, hvernig eigum við í virðingaríkum samskiptum
við nýfætt barn? Og hvaða þættir eru það sem styrkja tengsl móður og nýfædds barns, já eða föður og nýfædds barns“? Guðrún er einn
stofnmeðlima félagsins Meðvitaðir foreldrar – Virðing í uppeldi, sem hefur meðal annars haldið úti hlaðvarpsþáttum um virðingaríkt tengslauppeldi,
þar á meðal eru þættir um meðgöngu og fæðingar. „Þessi félagsskapur hefur kennt mér mikið um styrk kvenna og minn eigin styrk. Það er einmitt
það sem að ég tel að doula gæti veitt fæðandi konu, kvenorku, styrk og samhug. Við erum saman í liði, ég og þú, ég ætla að vera hérna fyrir þig!“
Guðrún vill veita konum og fæðingarfélögum þeirra persónulega þjónustu, vera styrkjandi og veita fræðslu eftir óskum komandi móður eða foreldra og hafa virðingu og traust að leiðarljósi í samskiptum. Guðrún veitir þjónustu sína konum og/eða pörum sem eru staðsett á
höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni.
Guðrún starfar hjá doula.is
Sími: 8461296
Email: gudru[email protected]