Alexandra heiti ég og byrjaði í doulunáminu vorið 2021. Ég starfa sem kírópraktor á Líf kírópraktík, en þar vinn ég hvað mest með konum á meðgöngu ásamt því að meðhöndla börn. Áhuginn fyrir meðgöngu, fæðingaferlinu og öllu því sem fylgir, kviknaði fyrst þegar ég varð ólétt af eldri dóttur minni 2014. Ég stundaði nám í UK 2016-2020 eftir að ég átti dætur mínar tvær, en áhuginn jókst þá þegar ég vann þar með ljósmæðrum á svokölluðu “feeding clinic”. Þar vorum við að aðstoða konur með brjóstagjöf ásamt því að fylgjast með líðan þeirra eftir fæðingu ofl.
Ég hlakka til að halda áfram að bæta á mig þekkingu, fylgja fleiri konum og pörum í fæðingu, veita stuðning og gefa af mér.
Alexandra
[email protected]
www.lifkiro.is
Ég hlakka til að halda áfram að bæta á mig þekkingu, fylgja fleiri konum og pörum í fæðingu, veita stuðning og gefa af mér.
Alexandra
[email protected]
www.lifkiro.is